26.3.2013
Sumarúthlutun orlofshúsa 2013
Umsóknareyðublöð vegna orlofshúsa sumarið 2013 hafa verið send á alla vinnustaði félagsmanna. Einnig er hægt að sækja um hér. Umsóknarfrestur er til 23. apríl.
meira ->

22.3.2013
Launahækkun 1. febrúar 2013
Laun hækkuðu 1. febrúar s.l. um 11.000kr samkv. kjarasamningi milli Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts hf.
meira ->

13.3.2013
Aðalfundur PFÍ 15. apríl
Aðalfundur Póstmannafélags Íslands verður haldinn 15. apríl n.k. að Grettisgötu 89 1. hæð kl. 20:00

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur fyrir árið 2012
3. Nefndakjör
4. Ákvörðun félagsgjalds og gjald til vinnudeilusjóðs
5. Önnur mál
Gestur fundarins að loknum aðalfundarstörfum er Sigurbjörn Sigurbjörnsson framkvæmdastjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda

Allir félagsmenn velkomnir. kaffiveitingar að loknum fundi.
Stjórn PFÍ
meira ->

13.2.2013
Kjarakönnun BSRB 2013 er farin af stað
Vinna við kjarakönnun BSRB fyrir árið 2013 er nú farin af stað og mega félagsmenn bandalagsins eiga von á því að haft verði samband við þá á næstu vikum vegna þess. Þetta er annað árið í röð sem að slík könnun er framkvæmd og því þekkja margir hvernig fyrirkomulagið er.
meira ->

17.12.2012
Breyting á úthlutunarreglum Sjúkrasjóðs PFÍ

1. janúar 2013 verða breytingar á úthlutunarreglum Sjúkrasjóðs Póstmannafélagsins. Styrkur vegna gleraugnakaupa verður 30.000kr á hverjum 36 mánuðum. Þó er aldrei greitt meira en 50% af kostnaði. Styrkur vegna meðferðar hjá félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sálfræðingi verður 4.500kr í hvert skipti og hámark 15 skipti á ári. Þó er aldrei greitt meira en 50% af kostnaði. Sjá nánar úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs


Eldri fréttir